
Ísraelski flugherinn gerði loftárás á byggingu klerkastjórnarinnar í Qom, suður af Teheran nú fyrir stundu. Samkvæmt upplýsingum þá var árásin gerð í þann mund þegar verið var að greiða atkvæði í kjöri um næsta leiðtoga klerkastjórnarinnar. Upplýsingar um mannfall liggja ekki fyrir.
Samkvæmt heimildum innan úr varnarmálaráðuneyti Ísraels var árásin gerð til þess að koma í veg fyrir að sérfræðingaráð klerkastjórnarinnar gæti valið sér nýjan leiðtoga. Fastlega er búist við að Íranir munu svara árásunum af hörku en þeir hafa ekki enn tjáð sig um loftárásina.
Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá átakasvæðunum í Miðausturlöndum.
