Hverjar eru líkurnar á því að Biden feðgarnir, John Kerry, Mitt Romney, Clinton-hjónin, Pelosi þingforseti og George Soros hafi öll tengsl við Úkraínu?
Flestir vita, að Hunter sonur Joe Biden var stjórnarmaður í úkraínska olíu- og gasfyrirtækinu Burisma. Þetta er sama fyrirtækið og Joe Biden montaði sig af að hafa látið reka saksóknarann, sem var að skoða viðskipti Bidens og George Soros í Úkraínu:
John Kerry
Hér er smá samantekt á spillingaraðgerðum Biden þegar hann var varaforseti og Kerry utanríkisráðherra í Úkraínu:
- Snemma árs 2014 heimsótti John Kerry Úkraínu og bauð einn milljarð dala í „aðstoð“ skömmu eftir að uppreisnarmenn komu ríkisstjórninni frá völdum og forsetinn flúði til Rússlands.
- Snemma árs 2014 fór Devon Archer, aðalstyrktaraðili Kerrys, á fund með Biden í Hvíta húsinu. Eftir það voru Archer og Hunter sonur Bidens tilnefndir í stjórn Burisma Holdings, stærsta gasframleiðanda Úkraínu.
- Næst var framrás Rússa inn í Úkraínu skyndilega stöðvuð af málaliðaher, sem milljarðamæringurinn og bankamaðurinn Igor Kolomoisky greiddi fyrir.
- Burisma réð fyrrverandi starfsmannastjóra John Kerrys, David Leiter, sem hagsmunagæslumann. Bretar höfðu fryst 23 milljónir dollara af fé stofnanda Burisma en féllu síðar frá öllum ákærum.
- Sumir halda því fram, að Burisma sé í eigu bankamannsins Kolomoisky sem fékk 1,8 milljarða dala greidda á 9 mánuðum í völundarhúsi aflandsreikninga. Kolomoisky var settur á lista yfir vegabréfsáritunarbann í Bandaríkjunum en var síðan fljótlega tekinn af honum aftur.
- Archer var fundinn sekur árið 2018 um að svindla á frumbyggjum.
- Mánuði fyrir síðustu ferð Biden til Úkraínu var öllum rannsóknum á Burisma hætt. Á síðasta degi Biden í embætti skrifuðu Burisma og Atlantshafsráðið, sem tengist demókratum, undir samstarfssamning.
Að auki birtist myndband af Kerry að monta sig af sér, Obama og Biden, sem allir unnu að því að láta reka úkraínska saksóknarinn sem var að rannsaka Burisma
Mitt Romney
Samkvæmt grein í Huffington Post skömmu eftir að Trump varð forseti, kom fyrrverandi háttsettur embættismaður CIA, Joseph Cofer Black, í stjórn Burisma, stærsta jarðgasfyrirtækis Úkraínu. Átti Black að „leiða öryggis- og stefnumótun öryggismála fyrirtækisins.“ Black gengdi ýmsum stöðum hjá CIA í stjórnartíð Clintons og George W. Bush forseta. Samkvæmt fréttum var Cofer Black „æðsti aðstoðarmaður Romney“. Hunter Biden sonur varaforsetans sat einnig í stjórn Burisma.
Clinton hjónin
Þar sem spilling er, þar eru Clinton-hjónin. Þau fengu milljónir frá Úkraínumönnum í gegnum árin í framlög til „stofnunar“ þeirra:
– Frá 2009 til 2013, árið sem Úkraínukreppan braust út, fékk Clinton stofnunin að minnsta kosti 8,6 milljónir dollara frá Victor Pinchuk Foundation, sem hefur höfuðbækistöðvar í Kænugarði.
– Árið 2008 lét Viktor Pinchuk, sem hafði orðið ríkur á pípulagningum, 29 milljón dollara til Clinton Global Initiative, áætlunar sem þjálfar framtíðarleiðtoga Úkraínu „til að nútímavæða Úkraínu.“ Wall Street Journal greindi frá málinu.
Nancy Pelosi
Paul Pelosi Jr. sonur Nancy Pelosi forseta Bandaríkjaþings, fékk þúsundir dollara greiddar fyrir starf, sem hann var ekki hæfur í, til þess að kaupa áhrif á foreldra sína. (Sama fyrirtæki og greiddi honum er líka tengt Clinton-hjónunum.) Nánar um þessi tengsl má sjá hér á myndbandinu fyrir neðan.
George Soros
George Soros hefur verið tengdur Úkraínu í mjög langan tíma. Hann var í viðtali hjá 60 Minutes fyrir mörgum árum síðan og á þeim tíma var hann með starfsemi í Úkraínu. Í þessu alræmda viðtali sagðist Soros ekki skammast sín fyrir að benda nasistum á gyðinga í Ungverjalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Nasistar stálu síðan eigum gyðinga og Soros sagði, að ef hann hefði ekki komið upp um gyðingana, þá hefði bara einhver annar gert það. Þetta er maðurinn, sem í dag er helsti fjármárstyrktaraðili demókrataflokksins. Hann afneitar guði.
Utanríkis- og dómsmálaráðuneyti Obama aðstoðaði George Soros við tilraun hans til að stjórna Úkraínu. Þetta er átakanlegt, vegna þess að Soros var að sögn á bak við flugvallarmótmælin eftir kjör Trump forseta. Viku áður var sagt að Soros hafi staðið á bak við 50 hópa sem tóku þátt í „kvennamótmælum“ daginn eftir að Trump sór forsetaeiðinn. Soros styrkti fleiri mótmæli m.a. Black Lives Matter mótmælin sem voru um allt land.
Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York og lögmaður Trumps forseta, sagði í nýlegum viðtölum að spillingin í Úkraínu næmi ekki staðar numið við Bidens feðgana heldur kæmi George Soros þar mjög við sögu, sjá myndband hér að neðan, hefst á 2. mínútu.
George Soros reyndi að fela að hann vildi taka yfir olíu- og gasiðnaðinn í Úkraínu
Milljarðamæringurinn George Soros og hópur auðugra styrktaraðila frá New York og Kaliforníu greiddu 50 milljónir dollara fyrir einkarannsókn í Rússlandi sem framkvæmd var af fv. breska njósnaranum Christopher Steele, rannsóknarfyrirtækinu Fusion GPS og fyrrverandi starfsmanni öldungadeildarþingmanninum Dianne Feinstein.
Afhjúpunin er hluti af lokaskýrslu um afskipti Rússa af kosningunum 2016 sem gefin var út 27. apríl af leyniþjónustunefnd þingsins. Niðurstaða skýrslunnar voru, að engar vísbendingar séu um samráð milli kosningabaráttu Trumps og Rússlands.
Í neðanmálsgrein í skýrslunni kemur fram að Daniel Jones, fyrrverandi starfsmaður Feinstein sem stýrir Penn Quarter Group (PQG), sagði FBI í mars 2017 að hann væri að vinna að verkefni með Fusion GPS sem „væri fjármagnað af 7 til 10 ríkum styrktaraðilum fremst í New York og Kaliforníu, sem borguðu um 50 milljónir dollara.“
Hunter Biden
Fyrir utan svindlið í gasfyrirtækinu Burisma, þá hefur Hunter Biden grætt mikið fé á því að setja peninga í fyrirtæki sem byggðu lífefnavopna-rannsóknarstofur í Úkraínu. Sannanir liggja fyrir um að fyrirtæki Hunter Bidens, Rosemont Seneca, fjárfesti í rannsóknarstofum Bandaríkjanna í Úkraínu. Á tístinu fyrir neðan segir Victoria Nuland aðstoðar utanríkisráðherra frá rannsóknarstofunum í Úkraínu.