Jólaborgin komin í hátíðarbúning

Reykjavík er komin í sparifötin, en hana prýða nú yfir 500 þúsund ljósaperur og 50 kílómetrar af jólaseríum. Fjölbreytt dagskrá verður í boði í jólaborginni á aðventunni. Jólaborgin býður upp á dagskrá í miðborginni, á söfnum, í Elliðaárdalnum, Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og víðar alla aðventuna og ættu öll að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. Dagskrána má finna með því að smella hér.

Tónlist, jólasveinar og annað fjör alla aðventuna

Jólakötturinn er á sínum stað og nú hafa Grýla og Leppalúði bæst í hópinn í gróðurhúsinu við Lækjartorg. Oslóartréð á Austurvelli er komið á Austurvöll í allri sinni dýrð og alltaf bætist eitthvað nýtt í jólaborgina og er fólk hvatt til að gera sér glaðan dag í borginni á aðventunni. 26 styrkjum var úthlutað úr viðburðapotti jólaborgarinnar til listafólks sem mun skemmta gestum og gangandi í miðborginni. Kórsöngur, harmonikkutónlist, jólaseiður og lúðrablástur mun heyrast um miðborgina og sjá til þess að halda uppi jólastemningunni í jólaborginni. Jólasveinarnir verða á vappi og tröllið Tufti ásamt fjölskyldu munu bregða á leik allar helgar fram að jólum. Boðið verður upp á flesta viðburði um helgar og svo síðustu dagana fyrir jól. Allt ókeypis.

Jólamarkaður við Austurvöll

Austurvöllur er í hjarta jólaborgarinnar og hefur aldrei verið fallegri. Um 10 kílómetrar af ljósaseríum prýða nú gróðurinn við torgið og fallegu ljósagöngin eru komin á sinn stað. Jólakransinn er á sínum stað en hann var mjög vinsæll í fyrra enda tilvalið að taka hátíðlegar myndir. Jólamarkaðurinn við Austurvöll, opnaði laugardaginn 29. nóvember og hefur stækkað frá því í fyrra. Fleiri söluaðilar hafa bæst í hópinn og munu bjóða upp á fjölbreytt úrval af smávöru og spennandi jólavörum. Markaðurinn verður opinn allar helgar í desember og dagana 18. – 23. desember. Öll velkomin!

Jólavættaleikur

Jólavættaleikurinn hefst 3. desember og verða þá allar jólavættirnar búnar að koma sér fyrir á húsveggjum víðs vegar um miðborgina. Leikurinn hefur notið vinsælda meðal gesta borgarinnar sem skemmta sér við að þræða götur og torg í leitinni að jólavættunum. Leikurinn stendur til 19. desember og verða vegleg verðlaun dregin út úr innsendum réttum svörum.

Jólaskógur opinn

Jökull Jónsson upplifunarhönnuður mun umbreyta Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í ævintýralegan jólaskóg.Þar verður auðvelt að komast í jólaskap enda grenilyktin allsráðandi í skrautlegu jólaumhverfi. Jólaskógurinn 3. desember og verður opinn virka daga frá klukkan 8-18, á laugardögum frá klukkan 10–18 og á sunnudögum frá 12–18. Öll velkomin.

Jólasmiðja í Listasafni Reykjavíkur

Í listasafni Reykjavíkur verður börnum boðið í opna jólaföndursmiðju í Hafnarhúsinu alla daga á opnunartíma safnsins. Tilvalið fyrir börn og fjölskyldur að líta við á safnið og eiga rólegheitastund í aðdraganda jóla. Í Fjölnotasalnum verða jólavættir sýnilegar og þar verður hægt að sjá allar vættir Reykjavíkurborgar á einum stað. Leikum að list er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur sunnudaginn 1. desember klukkan 13:00 – 15:00. Í Ásmundarsafni verður boðið upp á teikniæfingu með Söru Riel. Á æfingunni leiðir Sara gesti inn í ferli sjálfvirkra teikninga. Sara veitir gestum létt fyrirmæli og leiðbeiningar og varpar jafnframt sinni eigin teikningu upp á vegg með myndvarpa, á meðan tónlist fyllir rýmið og styður flæðið. Allt efni verður á staðnum.

Notaleg stund á Borgarbókasafninu á aðventunni

Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta og glæsilega dagskrá í aðdraganda jóla. Lifandi tónlist, söngur, smiðjur, föndur, sögustundir, skiptimarkaður, jólalagakeppni og ýmislegt fleira fyrir börn og fullorðna. Verið velkomin inn í hlýjuna og huggulegheitin á bókasafninu. Líkt og ávallt er ókeypis á alla viðburði.

Jólakötturinn og jólagjafir hjá dýrunum í jóladalnum

Fjölskyldu- og húsdýragarðinum hefur verið breytt í sannkallaðan Jóladal enda skreyttur hundruðum þúsunda jólaljósa og fólk og dýr óðum að komast í mikið jólaskap. Kerti og eldar munu loga víða um garð síðdegis um helgar og gestum verður boðið í hringekjuna frá kl. 16 til 20. Dagskrá í kringum dýrin verður með jólablæ og eflaust kærkomið hjá mörgum að hvíla sig á amstri jólaundirbúningsins í kringum dýrin. Jólakötturinn verður á vappi um garðinn og verður til vandræða fyrir dýr og fólk. Stilltir og heilsuhraustir hundar, skráðir hjá sveitarfélagi, eru velkomnir með í heimsókn í garðinn alla miðvikudaga og til jóla verða þeir einnig velkomnir með alla sunnudaga. Þeir skulu vera í stuttum taum og á ábyrgð fullorðins. Veitingasala Bæjarins Beztu verður opin um helgar og lofa jólastemningu þar sem mögulega verður hægt að grípa í spil og föndra eitthvað í rólegheitum. Garðurinn verður opinn frá kl. 10 til 20 á laugardögum og sunnudögum til jóla en annars frá 10 til 17. Milli jóla og nýárs verður opið frá kl. 10 til 17 en á aðfangadag, gamlársdag og nýársdag verður opið frá 10 til 15 og lokað á jóladag. Hefðbundinn aðgangseyrir verður allan desember.

Jólin á Árbæjarsafni

Bráðum koma blessuð jólin er yfirskrift jóladagskrár Árbæjarsafns sunnudagana 8. og 15. desember.

Þá daga gefst gestum tækifæri að njóta aðventunnar og upplifa jólin eins og þau voru í Reykjavík í þá gömlu góðu daga. Jólaundirbúningur er í fullum gangi í bænum og boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Í Árbæ má sjá heimafólk skera út laufabrauð, kemba ull og spinna garn. Kæsta skatan er komin í pottinn í Efstabæ og í Miðhúsum eru prentuð falleg jólakort. Í hesthúsinu í Garðastræti eru hjúin í óðaönn að steypa kerti úr tólg.

Jól í Heiðmörk

Jólamarkaðurinn í Elliðavatnsbæ sem Skógræktarfélag Reykjavíkur efnir til á hverju ári opnar laugardaginn 30. nóvember og þar kennir ýmissa grasa. Þau sem vilja fella sitt eigið tré eru velkomin á Hólmsheiðina frá og með 7. desember, þar sem jólaskógur skógræktarinnar verður opinn allar helgar fram að jólum. Íbúar miðborgarinnar geta svo farið og keypt sér jólatré í gróðurhúsið á Lækjartorgi en þar verður jólatrjáasala Skógræktarfélags Reykjavíkur dagana 14. – 22. desember. Nánar um dagskrána á Heiðmörk.is

Jól í dalnum – Elliðaárstöð

Í desember umbreytist Elliðaárstöð í jólastöð. Komið í dalinn og upplifið fallegu jólaljósin, skellið ykkur í ratleikinn Leitin að jólaorkunni, fræðist á vísindasýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar í Gestastofunni og fáið ykkur jólakræsingar á Elliða – kaffihúsinu í hjarta dalsins. Útisvæðið verður skreytt fallegum jólaljósum.

Skautaðu inn jólin!

Novasvellið er komið á sinn stað á Ingólfstorgi eins og fyrri ár og hefur aldrei verið glæsilegra. Það er fátt jólalegra en að skemmta sér á skautum og svo er hægt að gæða sér á heitu kakói á milli ferða. Kynnið ykkur dagskrána.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila