
Arnþrúður Karlsdóttir og Sandra Clausen ræddu við Sögu Sigþórsdóttur og Sigþór Sigþórsson frá Bakarameistanum í Jólaþættinum um stöðu bakaraiðnaðarins, aukna áherslu á handverk og þörf fyrir sérmenntað starfsfólk. Í viðtalinu kom fram að fagið sé að styrkjast á ný eftir nokkur róleg ár og fleiri hafi áhuga á námi og sérhæfingu en áður. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fagið sækir í sig veðrið
Saga og Sigþór sögðu að áhugi ungs fólks á bakaraiðn og konditórmenntun hafi aukist á síðustu árum. Áður hafi færri séð sér framtíð í handverki, sérstaklega í ljósi aukinnar framleiðslu erlendis og sterkrar stöðu stórfyrirtækja í matvælaiðnaði. Nú sé hins vegar meiri skilningur á gæðum sem fylgja handgerðu deigi og faglegri vinnslu. Það hafi áhrif á val fólks á námsleið og framtíðarstörfum sem skili greinilega auknu framboði nýrra starfsmanna.
Á sama tíma sé eftirspurnin umtalsvert meiri en framboðið, einkum þegar kemur að konditórum sem sérhæfa sig í tertugerð og skreytingum. Slík sérmenntun þykir eftirsótt og bakarí keppast um að fá fagfólk sem getur sinnt sífellt fjölbreyttari framleiðslu.
Handverk fremur en innflutt hráefni
Í viðtalinu kom fram að áhersla á handverk og upprunaleg hráefni hafi aukist í greininni og skipti nú lykilmáli fyrir neytendur. Saga og Sigþór lýstu því að munurinn á iðnvæddri framleiðslu og faglegu bakaríi felist ekki aðeins í bragði og gæðum, heldur í hollustu og stöðugleika. Handunnið deig, hefðbundnar aðferðir og ferskar fyllingar tryggi að varan haldist eins og til er ætlast í stað þess að fjöldaframleiðsla ráði ferðinni.
Hjá Bakarameistaranum starfar sérhæfður konditór innan fyrirtækisins. það er Sigrún Sól sem nam í Danmörku og sér meðal annars um kransakökur og aðrar sérvörur sem byggja á nákvæmri handvinnslu. Slík sérhæfing er enn sjaldgæf á Íslandi og getur ein sérmenntuð manneskja haft veruleg áhrif á vöruframboð og gæði fyrirtækis.
Fagið byggir á reynslu og samfellu
Þrátt fyrir aukinn áhuga nýrra kynslóða sögðu Saga og Sigþór að greinin krefjist langrar reynslu, þolinmæði og þekkingar á hráefnum. Þetta skýri að fagið haldi áfram sterkri rót í fjölskyldurekstri þar sem þekkingin færist milli kynslóða. Bakarameistarinn, sem hefur starfað frá árinu 1977 sé dæmi um slíkan rekstur þar sem nýjar kynslóðir taki við en virði áfram handverkið sem eldri kynslóðir byggðu upp. Bakarameistarinn starfar á 9 stöðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Nánari upplýsingar á Bakarameistarinn.is
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
