Jón Gunnars: Telur mögulegt að íslenskir aðilar tengist njósnamálinu

Í Stjórnmálaspjallinu í dag ræddi Arnþrúður Karlsdóttir við Jón Gunnarsson fyrrum dómsmálaráðherra og aðstoðarmann Bjarna Benediktssonar í Matvælaráðuneytinu um njósnamálið svokallaða og telur Jón mögulegt að íslenskir hagsmunaaðilar tengist njósnamálinu sem hefur beinst að honum og fjölskyldu hans. Arnþrúður benti á að það væri mikilvægt að skoða málið út frá því hverjir hafi hagsmuni af því að koma högg i á Jón og Sjálfstæðisflokkinn núna rétt fyrir kosningar. Það geti varla verið tilviljun að vídóupptaka af syni Jóns hafi eingöngu verið send á Heimildina. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Upplýsingar um Jón og hvalveiðar

Málið má rekja til þess að fyrrum leyniþjónustumenn á vegum njósnafyrirtækisins Black Cube öfluðu upplýsinga um Jón undir fölsku yfirskyni með því að blekkja son Jóns og telja honum trú um að tálbeita á þeirra vegum ætlaði að eiga við hann fasteignaviðskipti. Þetta var gert í þeim tilgangi að komast að upplýsingum um Jón í tengslum við hvalveiðimál. Jón telur að njósnaaðgerðin beinist sérstaklega gegn stefnum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið að á sviði hvalveiða og náttúruauðlindamála.

Íslenskir hagsmunaaðilar hafa þekkt tengsl við erlenda andstæðinga hvalveiða

Jón segir að málið sé fordæmalaust í íslenskum stjórnmálum og undirstriki nýjar áskoranir í tengslum við öryggi og upplýsingaöflun. Hann bendir á að málið tengist einnig mögulega erlendum hagsmunaaðilum og að sum umhverfisverndarsamtök sem starfi á Íslandi hafi þekkt tengsl við erlenda hagsmuni.
Hann leggur áherslu á að í þessu máli sé um flókin tengslanet að ræða þar sem íslenskir hagsmunaaðilar geti verið tengdir erlendum samtökum sem vilja koma höggi á stefnu Íslands í auðlindamálum.

Líklegt að hvalveiðileyfi verði gefið út fyrir kosningar

Arnþrúður spurði Jón afhverju það væri ekki búið að afgreiða hvalveiðileyfi til Hvals hf sem hefði tæpast fengið svör frá matvælaráðuneytinu í óeðlilega langan tíma.
Jón sagði að málið væri í ákveðnu ferli og ekki væri útilokað að það yrði gefið út veiðileyfi fyrir kosningar. Sérfræðingar ráðuneytisins hefðu með málið að gera en hann sjálfur komi ekki nálægt því.

Stefna Sjálfstæðisflokksins að styðja hvalveiðar

Hann telur ólíklegt að njósnamálið beinist eingöngu gegn honum persónulega heldur frekar gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins og þeirri sýn sem flokkurinn hafi á sjálfbæra auðlindanýtingu. Hann bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lengi stutt hvalveiðar og vinnslu auðlinda á Íslandi með sjálfbærum hætti.
Með þessu móti segir hann að hagsmunir Íslendinga í efnahagsmálum hafi verið efldir og tryggðir en að það sé augljóst að til séu hópar, bæði innlendir og erlendir, sem vilji standa gegn þessari þróun.

Njósnaaðgerðin er skipulögð glæpastarfsemi sem getur grafið undan réttarríkinu og lýðræðinu

Jón áréttar að málið veki upp áleitnar spurningar um stöðu öryggismála á Íslandi. Hann tekur fram að fjölmargar erlendar þjóðir þurfi nú að glíma við njósnaaðgerðir og aðra skipulagða glæpastarfsemi þar sem nýting upplýsinga sé beitt til að hafa áhrif á stefnumótun ríkja í auðlindamálum.

Íslensk stjórnvöld þurfa að taka á þessu máli í samræmi við alvarleika þess

Að hans mati sé mikilvægt að stjórnvöld skoði málið vel og taki á því í samræmi við alvarleika þess til að tryggja að íslenskir stjórnmálamenn og fjölskyldur þeirra njóti verndar gegn slíkum blekkingum og aðferðum leyniþjónustumanna og öfgafullra einstaklinga og félagasamtaka.

Hlusta má á ítarlega umfjöllun um njósnamálið í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila