Jón Kristjáns: Strok úr sjókvíum óhjákvæmileg

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Jón Kristjánsson fiskifræðing í þættinum Síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu. Þar kom fram að sjókvíeldi sé orðið stór atvinnuvegur á Vestfjörðum og að fyrirtæki á borð við Arctic Fish séu nú með framleiðslu sem nemur tugum þúsunda tonna af laxi. Jón benti á að það verði ekki hjá því komist að fiskur strjúki úr kvíum stöku sinnum, enda sé starfsemin umfangsmikil. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Óhjákvæmilegt að fiskur strjúki

Jón sagði að strok úr sjókvíum væri óhjákvæmilegt og að ekki væri hægt að koma alveg í veg fyrir slíkt, líkt og ekki væri hægt að koma í veg fyrir öll umferðarslys. Þótt fyrirtækin geri sitt besta til að tryggja öryggi kvía, þá geti ýmsar aðstæður valdið skemmdum. Hann nefndi sérstaklega að selir geti nagað göt á kvíarnar og að það geti tekið langan tíma áður en vart verði við það. Á þeim tíma gætu margir laxar þegar hafa sloppið út í sjó. Það gæti þó tekið talsverðan tíma að lax uppgövti gatið og strjúki en gerist það þá strjúki yfirleitt talsverður fjöldi.

Áhrif á villta stofna og erfðamengun

Jón vísaði til norskra rannsókna sem sýna að erfðamengun mælist nú í öllum helstu ám þar í landi. Í vesturhluta Noregs mælist hún allt að 40 prósent í verstu tilfellum. Hann benti á að ef laxar blandist hafi blendingar misgóða möguleika á að lifa af en þrátt fyrir það telji margir þessa þróun alvarlega.

Lausnir ræddar – lokað kerfi og dýpri kvíar

Jón sagði að oft væri bent á svokallað lokað kerfi sem hugsanlega lausn þar sem eldið færi fram í einangruðu umhverfi í stað opinna sjókvíar. Hann taldi þó að slíkar lausnir væru mjög kostnaðarsamar og langt í að þær yrðu raunhæfur valkostur.

Hlusta má á ítarlega umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila