
Jónas Már Torfason lögfræðingur hefur gefið kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fram fer 7. febrúar næstkomandi. Í prófkjörinu verður kosið í fjögur efstu sæti framboðslistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Jónas er uppalinn í Kópavogi og flutti nýlega aftur til bæjarins ásamt fjölskyldu sinni eftir dvöl í Danmörku. Hann er giftur Andreu Gestsdóttur lækni og eiga þau þrjár dætur.
Reynslumikill lögfræðingur með fjölbreyttan bakgrunn
Jónas starfar sem sérhæfður ráðgjafi á lögmannsstofunni Réttur – Aðalsteinsson & Partners. Áður hefur hann starfað meðal annars á lögmannsstofunni Plesner í Kaupmannahöfn, hjá LOGOS lögmannsþjónustu, sem blaðamaður á Fréttablaðinu og sem framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Hann hefur jafnframt gegnt fjölda trúnaðarstarfa. Þar má nefna formennsku í nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, setu í yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður og formennsku í aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands. Jónas hefur einnig verið formaður laganefndar Samfylkingarinnar og setið í framkvæmdastjórn flokksins auk annarra verkefna á vettvangi flokksins.
Á vettvangi sveitarstjórnar- og samfélagsmála hefur Jónas setið í frístunda- og forvarnarnefnd Kópavogs, í stjórn Markaðsstofu Kópavogs og í Stúdentaráði Háskóla Íslands fyrir Röskvu. Þá hefur hann starfað sem lögfræðilegur sjálfboðaliði hjá Frú Ragnheiði, skaðaminnkunarúrræði Rauða krossins á Íslandi.
Leggur áherslu á nærþjónustu og daglegt líf bæjarbúa
Í framboði sínu leggur Jónas áherslu á að stjórnmál í Kópavogi snúist í ríkari mæli um daglegt líf bæjarbúa og raunverulegar lausnir í þjónustu. Hann telur svigrúm vera til úrbóta í forgangsröðun og stefnumótun með það að markmiði að einfalda samskipti íbúa við bæinn og bæta þjónustu.
Sérstaka áherslu vill Jónas leggja á málefni barnafjölskyldna og ungmenna, eldri borgara og rekstraraðila lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hann bendir á að þessir hópar eigi það sameiginlegt að vera í reglulegum samskiptum við sveitarfélagið og að þörf sé á lausnum sem taki betur mið af raunverulegum aðstæðum þeirra.
