
Katla Ólafsdóttir var í kvöld kjörin nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands á kjörfundi ráðsins. Röskva fer með meirihluta í Stúdentaráði eftir kosningar í mars og mun leiða starfið á komandi kjörtímabili. Katla útskrifast með BA-gráðu í stjórnmálafræði í vor og hefur undanfarin þrjú ár verið virk í hagsmunabaráttu stúdenta, meðal annars sem oddviti og kosningastjóri Röskvu.
Ný stjórn tekur við í maí
Samhliða kjöri forseta var ný stjórn Stúdentaráðs skipuð. Kjartan Helgi Guðmundsson var kjörinn varaforseti en hann leggur stund á iðnaðarverkfræði.
Auður Halla Rögnvaldsdóttir var kjörin hagsmunafulltrúi og María Björk Stefánsdóttir, fráfarandi oddviti Röskvu, var kjörin menntasjóðsfulltrúi. Ný réttindaskrifstofa Stúdentaráðs tekur til starfa eftir skiptafund í maí.
Vil styrkja stöðu Stúdentaráðs
Í kjöri sínu lagði Katla áherslu á mikilvægi þess að efla tengsl milli Stúdentaráðs og Háskóla Íslands og styrkja stöðu ráðsins í samfélagsumræðunni.
Hún segir að virkt samtal og skýr ásýnd séu lykilatriði til að ná árangri í hagsmunabaráttu stúdenta og tryggja þeim betri kjör.
Röskva með skýran meirihluta
Röskva hlaut 11 af 17 sætum í Stúdentaráði í kosningum sem fóru fram 26. mars og tryggði sér þar með meirihluta. Þetta er í fyrsta sinn í tvö ár sem hreyfingin nær aftur meirihluta í ráðinu.
