Katrín fundaði með Theresu May

Katrín Jakobsdóttir og Theresa May.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, í Downingstræti 10 í morgun. Ráðherrarnir ræddu meðal annars stöðu mála varðandi útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, og mikilvægi alþjóðasamvinnu.

Á fundinum var meðal annars rætt um Brexit og sagði Katrín mikilvægt að halda tengslum þjóðanna áfram sterkum „Það er ljóst að sú staða sem uppi er í breskum stjórnmálum í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um útgöngu úr Evrópusambandinu er mjög flókin. Ég tel mikilvægt að Ísland og Bretland haldi sínum góðu tengslum og breski forsætisráðherrann er á sama máli. Nú er tímabært að huga frekar að framtíðarsambandi ríkjanna. Við vorum einnig sammála um mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu en hún á víða undir högg að sækja.“ segir Katrín.

Þá voru loftslags og umhverfismálin einnig til umræðu á fundi Karínar og May „Við ræddum um aðgerðir til að sporna gegn kynbundnu ofbeldi en Theresa May hefur látið sig þann málaflokk varða á sínum pólitíska ferli. Ég tel mikilvægt að við horfum út fyrir landsteinana til að takast á við þessi mál og á það einnig við mansal og ofbeldi gegn konum og börnum á netinu, en þar hafa bresk stjórnvöld sinnt mikilvægri stefnumótun,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila