Kjartan vill fyrirtækjarekna leikskóla og auka heimagreiðslur til foreldra

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Kjartan Magnússon borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Síðdegisútvarpinu um leikskólamál í Reykjavík, kostnað við uppbyggingu leikskóla og möguleika á fjölbreyttari rekstrarformum. Þar kom fram að Kjartan telur nauðsynlegt að borgin horfi í auknu mæli til samstarfs við fyrirtæki og styðji jafnframt betur við foreldra sem kjósa að hafa börn sín lengur heima. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fyrirtækjareknir leikskólar verði valkostur

Í umræðunni lagði Kjartan áherslu á að fyrirtækjareknir leikskólar gætu orðið raunhæfur valkostur samhliða borgarreknum leikskólum. Hann nefndi dæmi frá fyrri árum þegar stórir vinnustaðir héldu úti leikskólarými fyrir starfsfólk sitt og sagði slíkt fyrirkomulag styrkja tengsl fjölskyldu og atvinnulífs. Samkvæmt því sem fram kom hefðu fyrirtæki í Reykjavík sýnt áhuga á að taka þátt í slíku samstarfi þar sem starfsfólk gæti haft börn sín nær vinnustað og þannig auðveldað samræmingu vinnu og fjölskyldulífs. Í þessu sambandi, á sínum tíma, hafi til að mynda Hagkaup rekið slíkan leikskóla sem og Landspítalinn. Slík fyrirkomulag stuðlaði einnig að meiri tengslum barna og foreldra þar sem foreldrar gætu vitjað barna sinna í leikskólanum í matar og kaffihléum.

Byggingarkostnaður og framkvæmdir

Kjartan vísaði til þess að kostnaður við nýja leikskóla hefði hækkað verulega á undanförnum árum og nefndi sem dæmi leikskólann Brákarborg sem hefði farið langt fram úr upphaflegum kostnaðaráætlunum. Hann sagði slíkar framkvæmdir setja mikinn þrýsting á fjárhag borgarinnar og að nauðsynlegt væri að leita leiða til að dreifa áhættu og minnka fjárfestingarþörf sveitarfélagsins. Að hans mati gætu fjölbreyttari rekstrarform, þar á meðal einkarekin eða fyrirtækjarekin úrræði, létt á þessari byrði.

Heimagreiðslur til foreldra

Í viðtalinu kom einnig fram að Kjartan styddi auknar heimagreiðslur til foreldra sem kjósa að hafa börn sín heima í stað þess að nýta leikskólapláss. Hann taldi slíkt úrræði geta aukið valfrelsi fjölskyldna og jafnframt dregið úr þrýstingi á húsnæði og biðlista leikskóla. Þó greiðslurnar væru lægri en niðurgreiðsla borgarinnar á leikskólaplássi gætu þær að hans mati verið raunhæf leið fyrir suma foreldra.

Samkeppni um starfsfólk

Að lokum benti Kjartan á að fjölbreyttari rekstrarform gætu haft jákvæð áhrif á vinnumarkað leikskólakennara og annars starfsfólks. Með fleiri rekstraraðilum skapist samkeppni um starfsfólk sem gæti leitt til bættra kjara og meiri sveigjanleika í starfsemi leikskóla.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila