„Koltvísýringsógnin“ – lævís leið til að koma á alræðisstjórn í heiminum


Fullyrðingin um að koltvísýringur valdi mengun er algjört bull, segir blaðamaðurinn Alex Newman hjá The Epoch Times. Hann dregur þá ályktun eftir að hafa rætt við hundruðum vísindamanna. Þetta er einfaldlega ekki satt. En að „hrella mannkynið með þvílíku lúðabragði er lævís leið til að koma á alræðisstjórnkerfi í heiminum.”

Blaðamaðurinn Alex Newman í Epoch Times Facts Matter hefur talað við hundruðum vísindamanna um „mengunaráhrif” koltvísýrings. Niðurstaðan er sú að koltvísýringur er ekki sá áhrifavaldur og alþjóðlegir valdafíklar fullyrða. Þeir nota þessa blekkingu til að skapa hræðslu til að kom á alræðiskerfi sínu. Sagan er full af alræðiskerfum og einræðisherrum. Nútíminn er engin undantekning.

Fáránleg hugmynd verður snjallvopn í höndum alræðissinna

Þetta er það sem „loftslagsmálið“ snýst í raun um, segir blaðamaðurinn Alex Newman.

„Margt af þessu byggist á mjög röngum upphafspunkti, þeirri hugmynd að koltvísýringur sé mengunarefni. Ég myndi segja, eftir að hafa tekið viðtöl við vísindamenn hundruðum saman og marga af fremstu vísindamönnum heims, að þá er hugmyndin að koltvísýringur sé mengunarefni algjörlega út í hött. Hins vegar er hún það ekki út frá alræðislegu sjónarhorni ef hægt er að telja fólki trú um að koltvísýringur sé mengunarefni.”

Hver einasti þáttur lífsins er háður losun koltvísýrings

Þá er virkilega hægt að stjórna fólki. Alex Newman heldur áfram:

„Vegna þess að allar athafnir mannsins hafa í för með sér losun koltvísýrings, bæði lífið og dauðinn og að kveikja ljós. Hver einasti þáttur lífs okkar – ef við lútum þeirri hugmynd að koltvísýringur sé mengun – kemst þá undir stjórn fólksins sem segist bjarga okkur frá menguninni.”

Koltvísýringur er þvert á mjög mikilvægur fyrir plánetuna. Eðlisfræðiprófessor frá Princeton háskóla útskýrði fyrir Newman, að jörðin VILJI fá meiri koltvísýring. Jörðin verður grænni, uppskeran batnar og matvælaframleiðsla eykst. Ef koltvísýringur er ekki mengunarefni, þá eru allar loftslagsaðgerðir marklausar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila