Kynjaflækjan orðin enn flóknari og jafnframt kynlegri
Tveir karlar eru meðal sigurvegara, þegar brasilíska útgáfan af Glamour tímaritinu útnefnir konu ársins í mismunandi flokkum, segir Reduxx.
Sigurvegarinn í flokknum „kona ársins“ er transvestítan og áhrifamaðurinn Linn da Quebrada – sem hlýtur verðlaunin, þrátt fyrir að hann telji sig sjálfur ekki vera konu.
Og ekki nóg með það skrifar Reduxx: Linn da Quebrada hefur líka gert það ljóst, að hann „trúi því ekki að konur séu til.“ Hann sagði áður í viðtali:
„Ég er ekki kona, ég er transvestíti. Verum hreinskilin – það eru ekki til neinar „konur.“
Almenningur kynntist Linn da Quebrada sem varð þekkt fyrir að vera fyrsti transvestítinn í Brasilíuútgáfu raunveruleikaþáttarins „Big Brother.“
Transvestítan Giovanna Heliodoro hlaut verðlaunin sem Kona ársins í flokki kvenkyns áhrifavalda. Hann hefur m.a. vakið athygli fyrir að hafa kallað eftir ofbeldi gegn rithöfundi Harry Potter-bókanna, JK Rowling, sem er ásökuð um að ganga með „transfóbíu“ sem Útvarp Saga hefur áður fjallað um.