
Afgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að almenningur fái of litlar skýringar á umdeildum ákvörðunum stjórnvalda. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Telur þú að almenningur fái of litlar skýringar á umdeildum ákvörðunum stjórnvalda?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 94,03%
Nei: 4,85%
Hlutlaus: 1,12%
