
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að binda ætti íslensku þjóðtunguna í stjórnarskrá. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í morgun.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að binda eigi íslensku þjóðtunguna í stjórnarskrá?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 92,4%
Nei: 5,5%
Hlutlaus: 2%