Könnun: Bjarni Benediktsson á að segja af sér

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja rétt að Bjarni Benediktsson fjármála og efnahagsráðherra segi af sér. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Á Bjarni Benediktsson fjármála og efnahagsráðherra að segja af sér?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 65,7%

Nei 31%

Hlutlaus 3,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila