Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að breyta þurfi jarðalögum vegna ásóknar erlendra auðmanna í bújarðir á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefnum á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Þarf að breyta jarðalögum vegna ásóknar erlendra auðmanna í bújarðir á Íslandi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 97,9%
Nei: 2,1%
Hlutlausir: 0%