
Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru ánægðir með Höllu tómasdóttur sem forseta en misánægðir þó. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hversu ánægð/ur ertu með Höllu Tómasdóttur sem forseta Íslands?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Mjög ánægð/ur 33,4%
Ekki ánægð/ur 23,4%
Þokkalega ánægð/ur 19,7%
Sæmilega ánægð/ur 17,3%
Hlutlaus 6,1%
