Könnun: Flestir hyggjast kjósa í borgarstjórnarkosningunum í vor

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu hyggst kjósa í borgarstjórnarkosningunum í vor. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Ætlar þú að kjósa í borgarstjórnarkosningunum í vor?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 72,06%
Nei: 19,85%
Hef ekki ákveðið mig: 8,09%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila