Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun notast við bensín og dísel sem orkugjafa á bíla sína. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvernig orkugjafa notar þú á bílinn þinn?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Bensín: 41,4%
Dísel: 39,6%
Rafmagn: 11,4%
Er ekki á bíl: 5,8%
Vetni: 0,9%
Metan: 0,9%