
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að barnaverndarnefnd beri ábyrgð á eftirliti með barni sem er ráðstafað í fóstur á fósturheimili eða vistheimili. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Hver ber ábyrgð á eftirliti með barni sem er ráðstafað í fóstur á fósturheimili eða vistheimili?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Barnaverndarnefnd: 64,9%
Barnaverndarstofa: 17,8%
Umboðsmaður barna: 12,5%
Lögreglan: 4,7%
