Könnun: Flestir vilja ekki breyta klukkunni

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill ekki breyta klukkunni. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Vilt þú breyta klukkunni?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 62%
Já: 31%
Hlutlaus: 7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila