Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu líst illa á að Ursula Von Der Leyen hafi verið endurkjörin formaður framkvæmdastjórnar ESB. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Hvernig líst þér á að Ursula Von Der Leyen hafi verið endurkjörin formaður framkvæmdastjórnar Evrópusabmandsins?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Illa: 86,2%
Mjög vel: 7,4%
Sæmilega: 4,2%
Vel: 2,1%