Könnun: Ísland á ekki að taka þátt í að reisa drónavegg í Evrópu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að Ísland eigi ekki að taka þátt í að reisa drónavegg í Evrópu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Ísland að taka þátt í að reisa drónavegg í Evrópu?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 88,6%

Já: 8,7%

Hlutlausir: 2,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila