Könnun: Meirihluta líst illa á fjárlagafrumvarpið

Meirihluta þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu líst illa á fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvernig líst þér á fjárlagafrumvarpið?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Illa: 68,1%

Á eftir að kynna mér það: 23,6%

Sæmilega 6,6%

Vel: 1,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila