
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru ánægðir með samþykkt útlendingafrumvarpsins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Ertu ánægð/ur með að útlendingafrumvarpið hafi verið samþykkt?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 85,5%
Nei 11,4%
Hlutlaus 3,1%
Greidd voru 482 atkvæði