
Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu er búinn að ákveða hvern þeir ætla að kjósa í komandi forsetakosningum. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Ertu búin/n að ákveða hvern þú kýst í forsetakosningunum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 83,7%
Nei: 16,2%
