Könnun: Meirihluti ekki fylgjandi því að byggja fleiri háhýsi til að þétta byggð í Reykjavík

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru ekki fylgjandi því að byggja fleiri háhýsi til að þétta byggð í Reykjavík. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu fylgjandi því að byggja fleiri háhýsi til að þétta byggð í Reykjavík?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 91,4%

Já: 6,1%

Hlutlausir: 2,5%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila