Könnun: Meirihluti telur að hætta geti stafað af tækniþróun gervigreindar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að hætta geti stafað af þeirri hröðu tækniþróun sem á sér stað í gervigreind. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Telur þú að það stafi hætta af tækniþróun gervigreindar?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 80%
Nei: 14%
Hlutlaus: 7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila