
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að klerkastjórnin í Íran verði hrakin frá völdum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Telur þú að klerkastjórnin í Íran verði hrakin frá völdum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 67,86%
Nei: 27,23%
Hlutlaus: 4,91%
