
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að Ísland eigi að fordæma hernaðaraðgerðir Sýrlandsforseta gegn Kúrdum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á Ísland að fordæma hernaðaraðgerðir Sýrlandsforseta gegn Kúrdum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 53,8%
Nei: 27,3%
Hlutlaus: 18,9%
