
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að stjórnvöld eigi ekki að fordæma árásina í Íran. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Eiga stjórnvöld að fordæma árásina í Íran?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 64,25%
Já: 27,37%
Hlutlaus: 8,38%
