Könnun: Mikill meirihluti telur lífeyrisréttindi í hættu við inngöngu í ESB

Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að lífeyrisréttindi Íslendinga séu í hættu ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Eru lífeyrisréttindi Íslendinga í hættu ef Ísland gengur í ESB?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 82,44%
Nei: 10,31%
Ekki viss: 7,25%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila