Könnun: Mistök að fjölga ráðherrum

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja það hafa verið mistök aö fjölga ráðherrum í ríkisstjórn Íslands úr tíu í tólf. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem gerð var hér á vefsíðunni í morgun.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Voru það mistök að fjölga ráðherrum úr 10 í 12 í ríkisstjórn Íslands?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 96,9%
Nei 1,8%
Hlutlaus 1,2%
Greidd voru 327 atkvæði

Deila