Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja réttara að íslensk stjórnvöld sendi hjálpargögn til Úkraínu frekar en vopn. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvort telur þú réttara að íslensk stjórnvöld sendi til Úkraínu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Hjálpargögn: 74,5%
Vopn: 20,6%
Annað: 5,5%