Könnun: Rúm 92% telja stjórnvöld bera ábyrgð á okrinu í landinu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að stjórnvöld beri ábyrgð á því okri sem ríkir í landinu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Bera stjórnvöld ábyrgð á okrinu í landinu?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 92,6%
Nei 6,3%
Hlutlaus 1,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila