Könnun: Rúm 93% vilja ekki að fóstureyðingarfrumvarp Svandísar Svavarsdóttur verði samþykkt

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eða 93,5% vilja ekki að frumvarp Svandísar Svavarsdóttur um fóstureyðingar verði samþykkt. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um fóstureyðingar verði samþykkt?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 93,5%
Já 5,3%
Hlutlaus 1,4%
Þáttaka 500 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila