Könnun: Rúmlega 95% treysta ekki borgaryfirvöldum fyrir persónuupplýsingum

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eða 95,6% treysta ekki borgaryfirvöldum fyrir persónuupplýsingum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Treystir þú borgaryfirvöldum fyrir persónuupplýsingum?. Niðurstaöan var eftirfarandi:
Nei 95,6%
Já 3,8%
Hlutlaus 0.6%
Alls voru greidd 501 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila