
Skoðanir eru skiptar meðal þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu um hvort þeir óttist að berklaveiki breiðist út á Íslandi, þó voru í við fleiri sem ekki óttast útbreiðslu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Óttast þú að berklaveiki breiðist út á Íslandi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 53,13%
Já: 41,52%
Hlutlaus: 5,36%
