Könnun: Rúmur meirihluti hefur tekið þátt í mótmælum gegn kílómetragjaldi á Ísland.is

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist hafa tekið þátt í að mótmæla kílómetragjaldinu á vefnum Ísland.is. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Hefur þú tekið þátt í að mótmæla kílómetragjaldinu á vefnum Ísland.is?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 56,15%
Nei: 43,85%

Hægt er að smella hér til þess að taka þátt í mótmælunum

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila