Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að leggja ætti siðanefnd Alþingis niður.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að leggja siðanefnd Alþingis niður?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 75,8%
Nei 21,9%
Hlutlaus 2,3%