Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri ætti að segja af sér. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri að segja af sér?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 77,1%
Nei 17,6%
Hlutlaus 5,2%