
Skiptar skoðanir eru meðal þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu um hvort Bandaríkin muni fara úr Atlantshafsbandalaginu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Telur þú líklegt að Bandaríkin fari úr NATO?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 47,37%
Já: 42,69%
Ekki viss: 9,94%
