
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu styðja að skyldukennslu í fjármálalæsi og skýringum við stjórnarskrána verði komið á í öllum grunn- og framhaldsskólum landsins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Styður þú að skyldukennslu í fjármálalæsi og skýringum við stjórnarskrána verði komið á í öllum grunn- og framhaldsskólum landsins?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 88,2%
Nei 7,9%
Hlutlaus 3,9%