
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu styðja ekki söluna á björgunar- og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Styður þú að björgunar- og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF verði seld?
Niðurstaðan er eftirfarandi:
Nei 77,8%
Já 14,3%
Hlutlaus 6,9%