Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu styðja tillögur FÍB um upptöku kílómetragjalds í stað skattlagningar og eldsneytisgjalds. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Styður þú tillögu Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) um kílómetragjald í stað skattlagningar og eldsneytisgjalds?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 71,3%
Nei 23%
Hlutlaus 5,7%