Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Donald Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Donald Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 83,6%
Nei: 10,5%
Hlutlausir: 5,9%