Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ekki ætti að framselja Julian Assange til Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að það eigi að framselja JulianAssange til Bandaríkjanna?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 86,7%
Já: 10,2%
Hlutlausir: 3,2%