Könnun: Telja að hagsmunatengsl og nöfn kaupenda sé það sem almenningur megi ekki sjá í Lindarhvolsmáli

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að hagsmunatengsl og nöfn kaupenda sé helst það sem almenningur megi ekki sjá í Lindarhvolsmálinu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Hvað er það helst að þínu mati sem fólk má ekki sjá í Lindarhvolsmálinu?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Hagsmunatengsl 41,1%

Nöfn kaupenda 37,3%

Verð á eignum 16,3%

Ekkert óeðlilegt 5,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila