
Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Hamas muni ekki fallast á friðaráætlun Donald Trump. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Hamas muni fallast á friðaráætlun Donald Trump?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 67,9%
Já: 18,5%
Ekki viss: 13,6%
