Könnun: Telja að Vesturlönd séu á barmi stríðs við Rússland með aðstoð sinni við Úkraínu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að Vesturlönd séu á barmi stríðs við Rússland með aðstoð sinni við Úkraínu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Vesturlönd séu á barmi stríðs við Rússland með aðstoð sinni við Úkraínu?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 65,6%

Nei 28%

Hlutlaus 6,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila